Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 3. 2014 | 15:00

Nýju stúlkurnar á LET 2014: Josephine Janson (27/31)

Það var 31 stúlka sem komst í gegnum Lalla Aicha Tour School í Marokkó og hlaut kortið sitt á Evrópumótaröð kvenna, LET (Ladies European Tour).

Mótið fór fram dagana 14.-18. desember 2013 á golfvöllum Al Maaden og Samanah CC í Marrakech, Marokkó. Leiknir voru 5 hringir og eftir 4. hringinn var stúlkunum 92 sem upphaflega voru 94, fækkað niður í 60 og þar af hlutu 31 efstu eftir 5. og lokahringinn keppnisrétt á LET fyrir keppnistímabilið 2014.

Nú er aðeins eftir að kynna þær stúlkur sem urðu í 6 efstu sætunum. Byrjað verður á að kynna þær 3, sem deildu 4.-6. sætinu þ.e. þær Nobuhle  Dlamini,  Josephine Janson og Viva Schlasberg en þær léku allar samtals á 4 undir pari, 356 höggum, hver.

Sú sem verður kynnt í kvöld er  sænski kylfingurinn Josephine Janson.  Janson varð í 5. sætinu  eins og segir á  356 höggum (70 75 71 69 71).

Josephine Janson  fæddist 16. september 1991 í Halmstad, Svíþjóð og er því 22 ára. Hún á m.a. sama afmælisdag og  Jerry Haas. Josephine byrjaði að spila golf 1. janúar 2000,  þ.e. 8 ára ung.  Í Svíþjóð er hún í golfklúbb sem heitir Ringenäs GK.  Hún lék í 4 ár með golfliði Oklahoma State og eftir útskrift komst hún beint inn á LET með þessum líka glæsilega hætti þ.e. að verða í 5. sæti.  Janson gerðist atvinnumaður í golfi 23. júlí 2013.

Janson myndi m.a. gjarnan vilja spila í Solheim Cup.

Meðal áhugamála utan golfsins er að vera á skíðum, íþróttir almennt og að baka.

Til þess að sjá nýlegt viðtal sem fréttamaður LET tók við Janson SMELLIÐ HÉR: