Guðmundur Ágúst Kristjánsson, GR og ETSU. Mynd: ETSU
Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 4. 2014 | 08:00

Bandaríska háskólagolfið: Guðmundur Ágúst við keppni í dag á Mason Rudolph mótinu

Íslandsmeistarinn okkar í holukeppni 2013, Guðmundur Ágúst Kristjánsson, GR og golflið ETCU „The Bucs“ hefja í dag keppni á Mason Rudolph meistaramótinu, en mótið fer fram í Vanderbilt Legends Club í Franklín, Tennessee.

Mótið fer fram dagana 4.- 6. apríl 2014 og þátttakendur eru 78 frá 14 háskólum.

Guðmundur Ágúst fer út af 1. teig kl. 10:06 að staðartíma (kl. 15:06 hér heima á Íslandi).

Til þess að fylgjast með gengi Guðnumdar Ágústs og ETCU SMELLIÐ HÉR: