Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 4. 2014 | 18:00

Nýju stúlkurnar á LET 2014: Nobuhle Dlamini (28/31)

Það var 31 stúlka sem komst í gegnum Lalla Aicha Tour School í Marokkó og hlaut kortið sitt á Evrópumótaröð kvenna, LET (Ladies European Tour).

Mótið fór fram dagana 14.-18. desember 2013 á golfvöllum Al Maaden og Samanah CC í Marrakech, Marokkó. Leiknir voru 5 hringir og eftir 4. hringinn var stúlkunum 92 sem upphaflega voru 94, fækkað niður í 60 og þar af hlutu 31 efstu eftir 5. og lokahringinn keppnisrétt á LET fyrir keppnistímabilið 2014.

Nú er aðeins eftir að kynna þær stúlkur sem urðu í 6 efstu sætunum. Byrjað verður á að kynna þær 3, sem deildu 4.-6. sætinu þ.e. þær Nobuhle  Dlamini,  Josephine Janson og Viva Schlasberg en þær léku allar samtals á 4 undir pari, 356 höggum, hver.

Sú sem verður kynnt í kvöld er sú síðasta af þremenningunum og sú fyrsta sem kemst á LET frá Swazilandi  Nobuhle  Dlamini. Dlamini varð í 4. sætinu  eins og segir á  356 höggum (73 72 69 73 69).

Nobuhle Dlamini  fæddist 6. nóvember 1991 og er því 22 ára. Dlamini komst fyrst á golfkortið þegar hún varð í topp-10 á Heimslista áhugamanna eftir stjörnugolfár 2012 þar sem henni tókst að vinna 6 titla. Hún var ekki einu sinni meðal topp-100 í árslok 2011 en komst hæst í 2. sætið á Heimslista áhugakylfinga. Sigurgöngu hennar á golfvöllum hélt áfram 2013 þegar hún vann m.a. Eastern Cape Amateur Championship, Kwazula-Natal Championship, North West Championships, Gauteng Amateur Championship  og eins vann hún í einstaklingskeppninni í  GSA 72-Hole Team Championships. Auk þess varð Nobuhle suður-afrískur meistari kvenna í höggleik 2013.

Þó Nobuhle sé frá Swaziland hefir hún búið í Suður-Afríku s.l. 8 ár, m.a. til þess að geta stundað golfíþróttina. Nobuhle er með háskólagráðu í íþróttafræðum frá háskólanum í Pretoríu. Nobuhle segir pabba sinn Johannes hafa haft mestu áhrif á golfleik sinn, en hann bæði kenndi henni að spila og hefir verið þjálfari hennar.

Aðspurð um hverjar séu fyrirmyndir hennar í golfinu segir Nobuhle að það séu Tiger Woods, Ernie Els en líka Yani Tseng og Lee-Anne Pace.

Hér má sjá viðtal fréttamanns LET við Nobuhle eftir að hún náði að verða sú fyrsta frá Swaziland til þess að spila á LET SMELLIÐ HÉR: