Gísli Sveinbergsson, GK á 18. flöt í dag að loknum seinni hring á Unglingamótaröð Arion banka. Mynd: Golf 1
Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 12. 2014 | 09:30

GK: Gísli Sveinbergs sigraði á 4. móti púttmótraðar FJ og Hraunkots

Þá er púttmótaröð FootJoy og Hraunkots lokið. Síðasta mótið var sunnudaginn 06. apríl (þ.e. fyrir tæpri viku) og gekk að sjálfsögðu vel. 30 sprækir púttarar mættu og freistuðust til að næla sér í verðlaun frá FootJoy og Hraunkoti. Það voru haldinn 4. mót og er stefnan sett á að gera eins á næsta ári, enda gekk þetta mjög vel og allir ánægðir með mótin. Hraunkot vill koma á framfæri þökkum til Íslensk/Ameríska fyrir stuðningin en í verðlaun í púttnótinu voru FootJoy vörurnar sem sem Íslensk/Ameríska er umboðsaðili fyrir á Íslandi.  Einnig þakkar Hraunkot  öllum þeim sem tóku þátt í mótaröðinni þetta árið fyrir og vonast til að sjá alla aftur á næsta ári.

Minnt er á glæsilegt páskapúttmót Hraunkot, sem auglýst verður síðar.

Úrslit urðu svo eftirfarandi:

1. sæti Gísli Sveinbergsson         27 pútt (15-12)
2. sæti  Aron Atli Bergmann      28 pútt (16_12)
3. sæti  Keisarinn                        28 pútt (15-13)
4. sæti  Atli Már Grétarsson     30 pútt (15-15)
5. sæti  Orri Bergmann              31 pútt (16-15)
6. sæti  Vikar Jónasson              31 pútt (13-18)
Aukaverðlaun fyrir 20. sæti  Sæmundur Melsted