Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 14. 2014 | 10:45

Bandaríska háskólagolfið: Theódór bestur í liði Arkansas Monticello eftir 1. dag GAC svæðismótsins – Ari næstbestur

Theodór Emil Karlsson, GKJ og Ari Magnússon, GKG taka þátt í Great America Conference Championship Tournament, stutt: GAC svæðismótinu og hófu þeir keppni ásamt golfliði Arkansas Monticello í gær.

Mótið fer fram í Hot Springs Country Club í Hot Springs, Arkansas og stendur dagana 13.-15. apríl 2014.

Þátttakendur eru 55 frá 11 háskólum.

Eftir 1. dag er Theodór á besta skori golfliðs Arkansas Monticello, sem er 7. sætinu í liðakeppninni. Theodór Emil lék á 2 yfir pari, 74 höggum og er í 10. sæti í einstaklingskeppninni.

Ari er á 2.-3. besta skori Arkansas Monticello; lék á 5 yfir pari, 77 höggum og er í 22. sæti í einstaklingskeppninni.

Til þess að sjá stöðuna á GAC svæðismótinu eftir 1. dag SMELLIÐ HÉR: