
Tiger spilar í nýrri liðakeppni í Argentínu
Ef Tiger verður orðinn nógu góður í bakinu mun hann ásamt Matt Kuchar spila í nýrri liðakeppni í Argentínu, sem fram fer seint í október staðfesti umboðsmaður hans, Mark Steinberg, í gær.
Tiger mun ekki verja titil sinn í The Players Championship, sem hefst á TPC Sawgrass í kvöld, til að hvíla bakið, en er búinn að slá til að spila í Buenos Aires 21.-26. október n.k.
Í fjölmörgum golffréttamiðlum í Suður-Ameríku var því gefið undir fótinn að Tiger kynni að spila í nýju liðakeppninni í Argentínu, sem ber nafnið the Americas Golf Cup og mun fara fram annaðhvort í Nordelta golfklúbbnum eða Pilar golfklúbbnum.
Steinberg sagði „samninginn nú vera kominn á“ og aðeins væri beðið eftir hver mótsstaður yrði. Eins er ekki alveg komið á hreint hvert keppnisformið verður en talið er að um blandaða höggleiks-og- holukeppni verði að ræða, en Steinberg sagði að enn ætti eftir að slá því föstu.
Umboðsfyrirtæki Steinberg heitir Excel Sports Management, sem einnig er umboðsaðili Kuchar.
Nú fyrr í vikunni sagði Tiger á vefsíðu sinni að bati hans eftir bakuppskurðinn væri hægur og „(hann) vonaðist til að snúa aftur til leiks í sumar, (hann) vissi bara ekki hvenær.“
Nýja liðakeppnin fer fram í 3. viku á 2014-2015 keppnistímabils PGA Tour og a.m.k. er nú búið að staðfesta að Tiger verði aftur kominn til leiks í október á þessu ári!
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024