Valdís Þóra Jónsdóttir, GL. Mynd: Golf 1
Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 22. 2014 | 19:00

EPD & LET Access: Valdís Þóra og Þórður Rafn komust ekki í gegnum niðurskurð

Valdís Þóra Jónsdóttir, GL, og Þórður Rafn Gissurarson, GR, komust bæði ekki í gegnum niðurskurði á mótum, sem þau tóku þátt í ; Valdís Þóra í Svíþjóð og Þórður Rafn í Austurríki. Bæði mótin eru 54 holu og er skorið niður eftir 2 hringi – þeir sem komast í gegn fá að spila 3. og lokahringinn, en því miður fá Valdís Þóra og Þórður Rafn það ekki að þessu sinni

Valdís Þóra tók þátt í Sölvesborgs Ladies Open í Sölveborg, Svíþjóð. Gestgjafi mótsins var Fanny Sunesen.

Valdís Þóra komst sem segir ekki í gegnum niðurskurðinn, sem miðaður var við samtals 8 yfir pari en Valdís var 2 höggum frá því að komast í gegn lék hringina tvo á 10 undir pari, 154 höggum (78 76).

Valdís Þóra lauk keppni jöfn öðrum 6 í 55. sæti, en sjá má stöðuna eftir 2. hring mótsins með því að  SMELLA HÉR: 

Þórður Rafn Gissurarson, GR. Mynd: Golf 1

Þórður Rafn Gissurarson, GR. Mynd: Golf 1

Þórður Rafn Gissurarson, GR, tók þátt í Hauschlag NÖ Open, en mótið er hluti af EPD mótaröðinni þýsku og er leikið á  Golfresort Haugschlag í Austurríki.

Þórður Rafn lék á samtals 5 yfir pari, 149 höggum (78 71) og munaði 4 höggum að hann kæmist í gegnum niðurskurð.

Þórður Rafn stórbætti leik sinn í dag, en því miður dugði það skammt.  Hann sýndi stórgóða takta á seinni hringnum var m.a. með 7 fugla.

Þórður Rafn lauk keppni T-73 ásamt 7 öðrum kylfingum.

Til þess að sjá stöðuna eftir 2. dag Haugschlag NÖ Open SMELLIÐ  HÉR: