Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 5. 2011 | 15:00

Afmæliskylfingur dagsins: Andrea Maestroni – 5. desember 2011

Það er ítalski kylfingurinn Andrea Maestroni, sem er afmæliskylfingur dagsins í dag. Andrea er fæddur 5. desember 1976 í Bergamo á Ítalíu og er því 35 ára í dag. Bergamo er staðurinn þar sem átrúnaðargoð Andrea, Constatino Rocca ólst upp, en Constatino átti einmitt 55 ára afmæli í gær og því 20 ár á milli þeirra næstum upp á dag.  Andrea þekkir þennan fyrrum Ryder Cup leikmann vel og hefir þegið ráð frá honum allan feril sinn.

Andrea ólst upp í húsi, sem hefir gott útsýni yfir Garda golfvöllinn, en meðal félaga í Garda golfklúbbnum eru m.a. leikarinn góðkunni George Clooney. Þjálfari Andrea alla tíð hefir verið pabbi hans, Franco, sem er golfkennari. Golf er mikið í fjölskyldunni hjá Andrea, en frændi hans er líka atvinnumaður í golfi í Brescia. Andrea hefir nánast árlega frá því hann gerðist atvinnumaður í golfi þurft að fara í Q-school Evrópumótaraðarinnar og hefir pendúlast milli þeirrar raðar og Áskorendamótaraðarinnar.  Andrea er mikill íþróttamaður og leggur mikið upp úr að vera í góðu formi.

Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru m.a.:  Beverly Hanson, 5. desember 1924 (87 ára);  Lanny Wadkins, 5. desember 1949 (62 ára);  Anthony Irvin „Tony“ Sills, 5. desember 1955 (56 ára); Chang-Ting Yeh (Taívan), 5. desember 1968 (43 ára).

Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is