Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 17. 2014 | 08:45

Sweeney fyrrum kærasta Rory ófrísk

Fyrrum kærasta Rory McIlroy, Holly Sweeney er komin 6 mánuði á leið og á von á sínu fyrsta barni.

Hin 23 ára Holly, sem var niðurbrotin eftir skilnaðinn við Rory fyrir 2 árum, segist aldrei hafa verið hamingjusamari.

Hún er nýflutt inn til kærasta síns, Jeff Mason, sem er hokkíleikmaður með Belfast Giants liðinu.

Hún seldi fína húsið sem þau Rory voru nýbúin að kaupa, þegar hann féll fyrir Caroline, en Holly fékk að halda.

Vinir hennar segja: „Holly er regluleg sveitastelpa. Hún elskar að vera úti við og fara út að ganga með hundunum sínum.“

Holly er því flutt aftur út á land til Hollywood í Norður-Írlandi.

Spekúlerað var hvort Holly og Rory væru aftur farin að draga sig saman, þar sem hann fór heim til Hollywood eftir skilnaðinn við Caroline.

Svo virðist ekki vera….  A.m.k. er ekkert „tilbaka“ fyrir Rory hjá Holly Sweeney.