Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 2. 2011 | 12:00

Afmæliskylfingur dagsins: Dave Stockton – 2. nóvember 2011

Afmæliskylfingur dagsins í dag er Dave Stockton, sem á 70 ára stórafmæli.

David Knapp Stockton fæddist 2. nóvember 1941 í San Bernardino, Kaliforníu. Hann gerðist atvinnumaður í golfi 1964 eftir veru í University of Southern Californía. Hann á að baki 25 sigra sem atvinnumaður, þar af 10 á PGA Tour. Stockton hefir tvívegis sigrað á risamótum, þ.e. PGA Championship árin 1970 og 1976. Árangur hans í öðrum risamótum er líka góður hann deildi t.a.m. 2. sætinu á Masters 1974 og Opna bandaríska 1978.

Stockton hefir spilað á Seniors Tour (nú Champions Tour) frá árinu 1991 og sigrað þar 14 sinnum.

Stockton var í Ryder Cup liði Bandaríkjanna 1971 og 1977. Hann var fyrirliði sigurliðs Bandaríkjanna í Ryder Cup 1991, þegar mótið fór fram á Kiawah Island.

Á ferli sínum hefir Stockton þótt meðal þeirra allra bestu í stutta spilinu og þá helst púttunum. Hann skrifaði m.a. frábæra kennslubók um pútt:  „Dave Stockton’s Putt to Win“.

Kennslumyndband Stocktons - byggt á púttkennslubókinni hans vinsælu „Putt to Win"

Dave er kvæntur fegurðardrottningunni Katherine Hales (Orange Show) og eiga þau 2 syni sem báðir eru atvinnukylfingar, Dave Jr. og Ron.

Til þess að sjá kennslumyndskeið þar sem afmæliskylfingurinn okkar kennir okkur að pútta smellið HÉR:

Til þess að sjá kennslumyndskeið þar sem afmæliskylfingurinn okkar kennir okkur að chippa smellið HÉR: 

Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag: Karitas Sigurvinsdóttir, GS,  f. 2. nóvember 1963.

Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is