Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 30. 2012 | 20:45

Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2012

Afmæliskylfingur dagsins er danski kylfingurinn Amanda Moltke-Leth. Amanda fæddist í Kaupmannahöfn, 30. ágúst 1976 og er hún því 36 ára í dag.  Foreldrar Amöndu voru diplómatar og var hún því á eilífu flandri um heiminn, þegar hún var yngri. Hún byrjaði ung að spila golf og hætti á LET eftir farsælan feril í fyrra, til þess að gerast lögreglukona.

Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru:  Francisco Abreu 30. ágúst 1943 (69 ára);  Beth Bader, 30. ágúst 1973 (39 ára)  ….. og …..


Golf 1 óskar afmæliskylfingnum og öðrum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið!

Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is