Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 30. 2024 | 16:00

Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024

Afmæliskylfingur dagsins er danski kylfingurinn Amanda Moltke-Leth. Amanda er fædd í Kaupmannahöfn 30. ágúst 1976 og á því 48 ára afmæli í dag. Foreldrar Amöndu voru diplómatar og var hún því á eilífu flandri um heiminn, þegar hún var yngri. Hún byrjaði ung að spila golf og hætti á LET eftir farsælan feril 2011, til þess að gerast lögreglukona.

Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Francisco Abreu, 30. ágúst 1943 (81 árs); Erling Svanberg Kristinsson, 30. ágúst 1951 (73 ára); Ingibjörg Snorradóttir, 30. ágúst 1951 (73 ára); Beth Bader, 30. ágúst 1973 (51 árs) ….. og …..

Golf 1 óskar afmæliskylfingnum og öðrum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið!

Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is