Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 2. 2020 | 16:00

Afmæliskylfingur dagsins: Bjarki Pétursson og Ölver Jónsson —- 2. desember 2020

Afmæliskylfingar dagsins eru tveir: Bjarki Pétursson og Ölver Jónsson.

Ölver Jónsson er fæddur 2. desember 1970 og á því 50 ára STÓRAFMÆLI í dag. Komast má á facebook síðu Ölvers til þess að óska honum til hamingju með afmælið hér að neðan

Ölver Jónsson – 50 ára – Innilega til hamingju með afmælið!!!

Bjarki Pétursson er fæddur 2. desember 1994 og á því 26 ára afmæli í dag. Bjarki er afrekskylfingur í Golfklúbbi Borgarness (GKB) og hefir m.a. orðið klúbbmeistari GB 5 sinnum í röð!!!

Bjarki var m.a. valinn efnilegasti kylfingur Íslands á lokahófi GSÍ, 10. september 2011. Árið 2011 tók Bjarki þátt í Duke of York mótinu á Hoylake vellinum hjá Royal Liverpool klúbbnum og náði 16. sæti, sem er góður árangur í ljósi þess að veðrið var að leika keppendur grátt alla dagana. Árið 2011 var Bjarka gott en hann varð Íslandsmeistari í flokki 17-18 ára pilta bæði í holukeppni og höggleik og m.a. kjörinn Íþróttamaður Borgarfjarðar á Íþróttahátíð UMSB í kjölfarið; hann var síðan valinn íþróttamaður Borgarness 3. árið í röð, árið 2013.

Árið 2012 spilaði Bjarki bæði á Unglingamótaröð Arion banka og á Eimskipsmótaröðinni og það sama er að segja árið 2013; hann lék bæði á Íslandsbankamótaröðinni og Eimskipsmótaröðinni. Árið 2012 vann Bjarki 1. mótið á Unglingamótaröðinni uppi á Skaga, sem og 3. mótið í Korpunni.

Bjarki hefir spilað á mótum erlendis í ár m.a. tók hann þátt í Finnish Amateur Championship 2012 og 2013.

Þá er eftirminnilegt þegar Bjarki varð í verðlaunasæti (3. sæti) í einstaklingskeppninni á European Boys Challenge Trophy, sem fram fór í St. Sofia Golf & Spa, í Búlgaríu en mótið fór fram dagana 20.-22. september 2012.

Frá árinu 2013 er eftirminnilegt þegar Bjarki fór holu í höggi á 15. braut Islantilla á Spáni, 13. apríl 2013. Eins vann hann nokkur opin mót t.a.m. Opna Nettó mótið á heimavelli sínum Hamarsvelli og sömuleiðis Opna Icelandair Hotels mótið í júlí 2013.

Það sem gerðist markvert í lífi Bjarka 2014 var að hann útskrifaðist frá Menntaskólanum í Borgarnesi. Bjarki lék með Kent State í bandaríska háskólagolfinu í Ohio. Hér heima spilar hann á Mótaröð hinna bestu.

Í ár, 2019, var hann einn þriggja íslenskra kylfinga, sem tók þátt í lokaúrtökumóti fyrir Evróputúrinn, sem er stórglæsilegt, en því miður komst hann ekki í gegn, að þessu sinni.

Sjá má eldra viðtal, sem Golf1 tók við afmæliskylfinginn með því að SMELLA HÉR:

Komast má á facebook síðu Bjarka til þess að óska honum til hamingju með daginn hér að neðan:

Bjarki Pétursson, GB. Mynd: Golf 1

Bjarki Peturson (26 ára – Innilega til hamingju með stórafmælið!!!)

Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: John Matthew Shippen, Jr., (f. 2. desember 1879 – d. 20. maí 1968); Jóhanna Axelsdóttir (77 ára); Jenny Lee Smith, 2. desember 1948 (72 ára); Jay Haas, 2. desember 1953 (67 ára); Logi Bergmann (54 ára); Alexander Čejka, 2. desember 1970 (50 ára STÓRAFMÆLI!!!); Ölver Jónsson (50 ára STÓRAFMÆLI!!!); Marco Ruiz, 2. desember 1974 (46 ára); Shawn Stefani, 2. desember 1981 (39 ára) ….. og ……

Golf 1 óskar afmæliskylfingnum og öðrum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið!

Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is