Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 25. 2024 | 16:00

Afmæliskylfingur dagsins: Dwight Nevil og Thorunn Erlu Valdimarsdóttir – 25. ágúst 2024

Afmæliskylfingur dagsins er Dwight Nevil. Nevil er fæddur 25. ágúst 1944, í Altus Oklahoma og fagnar því 80 ára merkisafmæli í dag. Hann spilaði á PGA Tour á árunum 1971-1977 og á í farteskinu 3 sigra á atvinnumannsmótum (ekkert þeirra þó á PGA Tour).

Dwight Nevil

Thorunn Erlu Valdimarsdóttir er fædd 25. ágúst 1954 og fagnar 70 ára merkisafmæli í dag. Hún er sagnfræðingur og rithöfundur. Eftir hana liggja á þriðja tug bóka – skáldsögur, ljóðabækur, ævisögur og sagnfræðirit, auk fjölda greina og þátta fyrir útvarp og sjónvarp.  Komast má á facebook síðu afmæliskylfingsins til þess að óska henni til hamingju með afmælið hér að neðan:

Þórunn Erlu Valdimarsdóttir

Aðrir frægir kylfingar, sem eiga afmæli í dag eru: Dwight Nevil, 25. ágúst 1944 (80 ára MERKISAFMÆLI!!!); Magnús Eiríksson, 25. ágúst 1945 (79 ára); Thorunn Erlu Valdimarsdottir, 25. ágúst 1954 (70 ára MERKISAFMÆLI!!!); Ingi Karl Ingibergsson 25. ágúst 1962 (62 ára); Úlfar Jónsson, 25. ágúst 1968 (56 ára); Angela Park (á kóreönsku: 박혜인) 25. ágúst 1988 (36 ára); Robert (Robby) Shelton IV, 25. ágúst 1995 (29 ára) …. og ……

Golf 1 óskar afmæliskylfingnum og öðrum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið!

Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is