Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 29. 2019 | 16:00

Afmæliskylfingur dagsins: Eyþór Ingi Gunnlaugsson – 29. maí 2019

Afmæliskylfingur dagsins er söngvarinn og Dalvíkingurinn Eyþór Ingi Gunnlaugsson. Eyþór er fæddur 29. maí 1989 og á því 30 ára stórafmæli í dag. Komast má á facebook síðu Eyþórs Inga til þess að óska honum til hamingju með daginn hér að neðan

Eyþór Ingi (30 ára– Innilega til hamingju með afmælið!!!)

Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Richard C. Metz, f.29. maí 1908 – d. 5. maí 1993; Patrick Joseph Skerritt, f. 29. maí 1926 – d. 21. nóvember 2001; Ólöf Björk Björnsdóttir, 29. maí 1946 (73 ára), Guðfinna Sigurþórsdóttir, 29. maí 1946 (móðir Karenar Sævars og Sigurþórs Sævarssonar – Fyrsti golfmeistari Íslands í kvennaflokki, 1967. Eina konan í hópi stofnenda GS, 1964); Björg Traustadóttir, GFB, 29. maí 1965  (54 ára);  Helix Lee, 29. maí 1987 (32 ára ); Noh Seung-yul, 29. maí 1991 (28 ára) og Heather Cox

Golf 1 óskar afmæliskylfingnum og öðrum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið!

Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is