Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 30. 2019 | 16:00

Afmæliskylfingur dagsins: Graeme McDowell – 30. júlí 2019

Afmæliskylfingur dagsins er írski kylfingurinn Graeme McDowell. McDowell er fæddur 30. júlí 1979 og á því 40 ára stórafmæli í dag. Hann er kvæntur Kristin Stape (2013) og saman eiga þau dótturina Vale Esme McDowell (2014) og soninn Wills Edson McDowell (2016). McDowell hefir sigrað 4 sinnum á PGA Tour, 10 sinnum á Evróputúrnum og 1 sinnum á Asíutúrnum. Hann hefir og sigrað einu sinni í risamóti þ.e. á Opna bandaríska (2010).

Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Bergsteinn Hjörleifsson GK, 30. júlí 1962 (57 ára); Guðmundur Rúnar Hallgrímsson, 30. júlí 1975 (44 ára); Justin Rose, 30. júlí 1980 (39 ára); Nino Bertasion, 30. júlí 1988 (31 árs); Louise Larsson, 30. júlí 1990 (29 ára) ….. og ……

Golf 1 óskar afmæliskylfingnum til hamingju með stórafmælið sem og öðrum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið!