Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 29. 2021 | 16:00

Afmæliskylfingur dagsins: Gunnar Páll Þórisson – 29. mars 2021

Afmæliskylfingur dagsins er Gunnar Páll Þórisson, en hann er fæddur 29. mars 1961 og á því 60 ára merkisafmæli í dag!!!  Gunnar Páll er í GKG. Hann hefir spilað á Eimskipsmótaröðinni (nú mótaröð þeirra bestu) og 2012 á Símamótinu í Grafarholti fór hann holu í höggi af 190 m færi og sló með 4-járninu sínu. Gunnar Páll hefir jafnframt verið í karlasveit GKG í sveitakeppnum og er þá fátt eitt talið af ferli Gunnars Páls. Komast má á heimasíðu afmæliskylfingsins til þess að óska honum til hamingju með stórafmælið hér að neðan

Gunnar Páll Þórisson – Innilega til hamingju með merkisafmælið!!!

Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Ernest Joseph (E. J.) „Dutch“ Harrison f. 29. mars 1910 – 19. júní 1982; Toggi Bjöss, 29. mars 1944 (77 ára); Sue Fogleman, 29. mars 1956 (65 árs) spilaði á LPGA;  Kirk Allan Triplett, 29. mars 1962 (59 ára); Lori Atsedes, 29. mars 1964 (57 ára); Ingimar Kr. Jónsson, 29. mars 1970 (51 árs)  Gudrun Þórs, 29. mars 1972 (49 ára), Gerina Piller, 29. mars 1985 (36 ára)  …. og ….

Golf 1 óskar öllum kylfingum, sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið!

Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is

Mynd í aðalmyndaglugga af Gunnari Páli Þórissyni. Mbl.