Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 23. 2024 | 16:00

Afmæliskylfingur dagsins: Harris English —- 23. júlí 2024

Afmæliskylfingur dagsins er Harris English. Harris fæddist 23. júlí 1989 og er því 35 ára í dag! Harris þykir með hávaxnari mönnum á PGA en hann er 1,91 m á hæð. Hann hefir sigrað 8 sinnum á atvinnumannsferli sínum – spilar á PGA Tour og hefir sigrað 4 sinnum á þeirri mótaröð þ.e. í fyrsta skiptið á  St. Jude Classic, 9. júní 2013 og síðan í annað sinn á OHL Classic í Mayakoba, 17. nóvember 2013. Síðan sigraði English á Sentry Tournament of Champions 10. janúar 2021 og sama ár á Travelers, þ.e. 27. júní 2021.

Sjá má kynningu Golf 1 á afmæliskylfingnum með því að SMELLA HÉR:

Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru:

Ken Green, 23. júlí 1958 (66 ára); Craig Barlow, 23. júlí 1972 (52 ára); Thomas Brent „Boo“ Weekley, 23. júlí 1973 (51 árs); Mikko Korhonen, 23. júlí 1980 (44 ára); Malín Brand, 23. júlí 1981 (43 ára);  Kiradech Aphibarnrat, 23. júlí 1989 (35 ára); Vikar Jónasson, GK, 23. júlí 1997 (27 ára) ….. og …..

Golf 1 óskar afmæliskylfingnum og öðrum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið!

Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is