Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 16. 2015 | 16:00

Afmæliskylfingur dagsins: Ingi Rúnar Birgisson – 16. apríl 2015

Það er Ingi Rúnar Birgisson sem er afmæliskylfingur dagsins. Ingi Rúnar er fæddur 16. apríl 2000 og á því 15 ára afmæli í dag. Hann er núverandi Íslandsmeistari í höggleik í strákaflokki.

Komast má á facebook síðu Inga Rúnar hér að neðan

Ingi Rúnar Birgisson, GKG. Mynd: Í  einkaeigu

Ingi Rúnar Birgisson, GKG (f. 16. apríl 2000 – 15 ára – Innilega til hamingju með afmælið!!!)

Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Mark Haastrup, 16. apríl 1984 (31 árs); Michael Thompson, 16. apríl 1985 (30 ára stórafmæli– hann leiddi m.a. fyrir lokadag McGladreys mótsins í október 2011) …. og ….

Bjössi Garðars, GS
F. 16. apríl 1962 (53 ára)

Oli Magnusson
F. 16. apríl 1970 (45 ára)

Golf 1 óskar afmæliskylfingnum og öðrum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið!

Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is