Afmæliskylfingur dagsins: Kristófer Karl Karlsson – 17. september 2019
Afmæliskylfingur dagsins er Kristófer Karl Karlsson, afrekskylfingur úr Golfklúbbi Mosfellsbæjar (GM) og Íslandsmeistari 2018 í holukeppni í flokki 17-18 ára pilta. Kristófer Karl er fæddur 17. september 2001 og er því 18 ára í dag.
Kristófer Karl var valinn efnilegastur GKJ-ingurinn um þetta leyti fyrir 7 árum, 2012 (þá 11 ára) og hann hefir svo sannarlega staðið undir því. Það ár (2012) spilaði Kristófer Karl á Áskorendamótaröði Arion banka og þar sigraði hann í 1. og 4. mótinu í strákaflokki.
Kristófer Karl sigraði eftirminnilega á 6. móti Íslandsbankamótaraðarinnar 2014, sem fram fór á Korpunni. Hann átti m.a. stórglæsilegan hring upp á 4 undir pari, 68 högg!!! Þetta var fyrsti sigur Kristófer Karls á Íslandsbankamótaröðinni, en hann var nú samt búinn að komast ansi nálægt sigri en aðeins munaði 1 höggi á Íslandsmótinu í höggleik í strákaflokki að hann næði fyrsta Íslandsmeistaratitili sínum á Hellu.
Í Korpunni setti Kristófer Karl jafnframt vallarmet af bláum teigum, með 4 höggum undir pari (og það 12 ára!!!) – þetta var í fyrsta sinn sem hann spilaði undir pari og hann gerði það með flottum hætti fékk 4 fugla og 14 pör þ.e. skilaði „hreinu“ skollalausu skorkorti!!!
Í fyrra og nú í ár (2019) hefir Kristófer Karl spilað á Íslandsbanka og „Mótaröð þeirra bestu“.
Frábær kylfingur á ferð þar sem Kristófer Karl er!!!
Komast má á facebook síðu Kristófer Karls til þess að óska honum til hamingju með afmælið hér að neðan
Kristófer Karl Karlsson (Innilega til hamingju með 18 ára afmælið!!!)
Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Torakichi Nakamura (中村 寅吉 Nakamura Torakichi, 17. september 1915 – 11. feb 2008); Mary Lou Daniel Crocker 17. september 1944 (75 ára); Pala Ofeigsdottir (66 árs), Ragnhildur Pála, 17. september 1951 (68 ára;) Scott William Simpson, 17. september 1955 (64 ára); Craig A. Spence, 17. september 1974 (45 ára); Jennifer Rosales, frá Filipseyjum 17. september 1978 (41 árs), Ryo Ishikawa (japanska: 石川 遼) 17. september 1991 (28 ára); Byong-Hun An, (frá S-Kóreu) 17. september 1991 (28 ára); Róbert Theodórsson, 17. september 1995 (24 ára) ….. og ….. Ingibjorg Olof Vilhjalmsdottir
Golf 1 óskar öllum, sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið!
Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024