Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 10. 2015 | 16:00

Afmæliskylfingur dagsins: Lárus Garðar Long – 10. desember 2015

Afmæliskylfingur dagsins er Lárus Garðar Long, GV. Hann er fæddur 10. desember 1999 og er því 16 ára í dag. Hann vann m.a. flokk 14 ára og yngri stráka á Áskorendamótaröð Íslandsbanka í Setberginu 15. júní 2013. Síðan sigraði Lárus Garðar í drengjaflokki á 3. móti Áskorendamótaraðar Íslandsbanka 21. júní 2014, sem fram fór hjá Golfklúbbnum Mostra í Stykkishólmi.

Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru:  Don Bies, f. 10. desember 1937 (78 ára) Sjá má afmælisgrein Golf 1 um Bies með því að SMELLA HÉR ;  Sæmundur Pálsson, 10. desember 1947 (66 ára); Guðrún Garðars, GR; 10. desember 1954 (59 ára); Snorri Bergþórsson , 10. desember 1972 (43 ára); Jóhanna Lea Lúðvíksdóttir, GR, 10. desember 2002 (14 ára) …. og ….

Thelma Þorbergsdóttir

Thelma Þorbergsdóttir

Thelma Þorbergsdóttir 10. desember 1981 (34 ára)

Golf 1 óskar afmæliskylfingnum og öðrum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið!

Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is