Laura Davies
Ragnheiður Jónsdóttir | október. 5. 2011 | 12:00

Afmæliskylfingur dagsins: Laura Davies – 5. október 2011

Laura Jane Davies fæddist 5. október 1963 í Coventry á Englandi og er því 48 ára í dag.  Laura er einhver albesti kylfingur Breta. Frá því að hún gerðist atvinnumaður í golfi, árið 1985, þ.e. fyrir 26 árum hefir hún sigrað í 81 skipti; m.a. 20 sinnum á LPGA; 44 sinnum á Evrópumótaröð kvenna (LET) og 7 sinnum á áströlsku ALPG og 6 sinnum á japanska LPGA.  Laura hefir alls 4 sinnum unnið á risamótum kvennagolfsins þ.e.: LPGA Championship 1994 og 1996; US Women´s Open 1987 og du Maurier Classic1996.  Laura þarf bara að vinna 1 risamót enn eða 2 LPGA mót til þess að komast í frægðarhöll kylfinga.

Laura Davies er eini kylfingurinn sem tekið hefir þátt í öllum 12 Solheim Cup mótunum (1990-2011).

Laura hefir hlotið allskyns viðurkenningar og verðlaun í golfheiminum, sem óvinnandi vegur er að telja upp hér.  Látið skal nægja að segja að hún vann EPSY verðlaunin sem besti kvenkylfingur ársins 1995 og var valin kvenkylfingur ársins á LPGA 1996.

Í dag er Laura að setja allskyns aldursmet, fyrir að vera elsti kylfingur til þess að taka þátt í eða vinna hitt eða þetta mótið og 48 ára er hún enn með keppnisrétt á báðum helstu kvenmótaröðum heims í golfinu, LET og LPGA.

Að lokum er e.t.v. vert að geta þess þótt það komi golfinu kannski ekki beint við að Laura er mikill aðdáandi og stuðningsmaður Liverpool í enska boltanum og hefir gaman af veðmálum sem m.a. hefir leitt til þess að hún hefir fjárfest í veðhlaupahestum.