Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 28. 2024 | 16:00

Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024

Það er Lee McLeod Janzen sem er afmæliskylfingur dagsins. Jóhanner fæddur 28. ágúst 1964 í Austin, Minnesota og á því 60 ára merkisafmæli í dag!!!  Hann spilaði m.a. í bandaríska háskólagolfinu með liði  Florida Southern College. Afmæliskylfingurinn gerðist atvinnumaður í golfi árið 1986. Hann á í beltinu 16 sigra þar af 8 á PGA Tour. Þekktastur er hann e.t.v. fyrir að sigra tvívegis á Opna bandaríska: 1993 og 1998. Í dag  spilar Janzen á Öldungamótaröð PGA; PGA Champions Tour og býr  með eiginkonu sinni Beverly, sem hann kvæntist árið 1989, í Orlandó, Flórída og eiga þau einn son: : Connor Macleod Janzen.

Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Jóhann Árelíuz, 28. ágúst 1952 (72 ára); David Whelan, 28. ágúst 1961 (63 ára); Lee McLeod Janzen, 28. ágúst 1964 (60 ára MERKISAFMÆLI!!!); Pétur Hrafnsson, 28. ágúst 1966 (58 ára); Yugi Igarashi, 28. ágúst 1968 (56 ára); Joakim Haeggman 28. ágúst 1969 (55 ára); Kristrún Heimisdóttir, 28. ágúst 1971 (53 ára); Gísli Rafn Árnason (51 árs); Cole Hammer, 28. ágúst 1999 (25 ára) …. og ….

Golf 1 óskar afmæliskylfingnum og öðrum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið!

Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is