Lovísa Hermannsdóttir
Ragnheiður Jónsdóttir | september. 7. 2019 | 16:00

Afmæliskylfingur dagsins: Lovísa Hermannsdóttir – 7. september 2019

Það er Lovísa Hermannsdóttir, sem er afmæliskylfingur dagsins. Lovísa er fædd 7. september 1949 og á því 70 ára merkisafmæli í dag. Hún er í Golfklúbbnum Keili í Hafnarfirði. Lovísa hefir tekið þátt í fjölda opinna móta sem innanfélagsmóta hjá Keili og staðið sig vel. T.a.m. varð hún í 1. sæti á Gullhamrinum í Borgarnesi 2011. Komast má á facebook síðu afmæliskylfingsins til þess að óska honum til hamingju með daginn hér fyrir neðan:

Lovísa Hermannsdóttir

Lovísa Hermannsdóttir – 70 ára – Innilega til hamingju með merkisafmælið!!!

Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Carolyn Cassidy Cudone, f. 7. september 1918 – d. 1. mars 2009; Louise Suggs, 7. september 1923 (hefði orðið 96 ára í dag)  Bæjarins Beztu Pylsur (82 ára);  Mark Randall McCumber, 7. september 1951 (68 ára); Angie Everhardt, módel 7. september 1969 (50 ára STÓR- AFMÆLI!!!); Tag Ridings, 7. september 1974 (45 ára); Hljómsveitin Brimnes (43 ára) Elisa Serramia, 7. september 1984 (35 ára); Annelie Sjöholm, 7. september 1995 (24 ára); …. og …..

Golf 1 óskar afmæliskylfingnum og öðrum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið!

Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is