Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 16. 2014 | 16:00

Afmæliskylfingur dagsins: Phil Mickelson —- 16. júní 2014

Það er Phil Mickelson, sem er afmæliskylfingur dagsins. Mickelson er fæddur 16. júní 1970 í San Diego, Kaliforníu og á því 44 ára afmæli í dag!!!

Mickelson er nú nr. 13 á heimslistanum. Hann varð í 28. sæti á Opna bandaríska, sem lauk í gær á samtals 7 yfir pari, heilum 16 höggum á eftir sigurvegaranum Martin Kaymer.

Mickelson er í 9. sæti yfir þá sem sigrað hafa oftast PGA Tour mót (en Mickelson hefir sigrað í 42 slíkum mótum). Eins hefir Phil sigrað þrívegis á Masters (2004, 2006 og 2010); einu sinni á Opna breska (2013) og einu sinni á PGA Championship (2005).  Mickelson er frægur fyrir að hafa 6 sinnum orðið í 2. sæti á Opna bandaríska, en ekki einu sinni því sæti náði hann í ár!

Phil komst nú nýverið í fréttirnar fyrir að hafa stundað innherjaviðskipti í tveimur verðbréfamálum og sætti m.a. rannsókn FBI, en síðan kom í ljós að enginn fótur reyndist vera fyrir gruninum.

Phil er kvæntur Amy (giftust 1996) og eiga þau saman 3 börn: Amöndu (1999); Sophiu (2001) og Evan (2003)

Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru:  Old Tom Morris, 16. júní 1821;  Michael Kahn, 16. júní 1972 (42 ára)  ….. og …..

Golf 1 óskar afmæliskylfingnum og öðrum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið!

Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is