Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 5. 2020 | 16:00

Afmæliskylfingur dagsins: Rex Allen Caldwell – 5. maí 2020

Það er Rex Allen Caldwell, sem er afmæliskylfingur dagsins. Caldwell er fæddur 5. maí 1950 og á því 70 ára merkisafmæli í dag. Hann fæddist í Everett, Washington, en býr í dag í San Antonio, Texas. Caldwell gerðist atvinnumaður í golfi 1972. Besti árangur á risamóti var 3. sætið á PGA Championship 1979. Á ferli sínum sigraði hann 4 sinnum, þ.á.m. 1 sinni á PGA Tour, þ.e. á LaJet Coors Classic 25. september 1983.

Rex Allen Caldwell – Innilega til hamingju með afmælið!!!

Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: William C. Campbell 5. maí 1923 (97 ára); John Greg Adams, 5. maí 1954 (66 ára); Arnar Már Ólafsson, 5. maí 1966 (54 ára); Robert David Burns, 5. maí 1968 (52 ára); Steven Michael Lewton 5. maí 1983 (37 ára); Ljosmyndari Is og Áslaug Kristjánsdóttir

Golf 1 óskar afmæliskylfingnum og öðrum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið!

Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is