Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 18. 2024 | 16:00

Afmæliskylfingur dagsins: Stefán Guðmundur Þorleifsson – 18. ágúst 2024

Afmæliskylfingur dagsins er Stefán Guðmundur Þorleifsson.

Stefán er fyrrverandi íþróttakennari og fyrrverandi framkvæmdastjóri Fjórðungssjúkrahússins í Neskaupstað, Hann var fæddur 18. ágúst 1916 og hefði því orðið 108 ára í dag. Stefán var í Golfklúbbi Neskaupsstaðar, (GN)., Hann lést þann 14.mars 2021 og var þá elsti karlmaður landsins.

Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Reykjavík Reykvíkingur (100 ára); Egill Egilsson, GMS, 18. ágúst 1956 (68 ára); Anna Kr. Jakobsdottir (68 ára); Grasagarður Reykjavíkur (63 ára); Thorey Vilhjalmsdottir (52 ára); Joachim B. Hansen, 18. ágúst 1990 (34 ára – hann er danskur og var á Áskorendamótaröðinni) ….. og …..

Golf 1 óskar þeim, sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið!

Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is