Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 12. 2021 | 16:00

Afmæliskylfingur dagsins: Þórhalli Einarsson – 12. ágúst 2021

Það er Þórhalli Einarsson, sem er afmæliskylfingur dagsins. Þórhalli er fæddur 12. ágúst 1961 og á því 60 ára merkisafmæli í dag. Hann er fv. formaður Golfklúbbs Kiðjabergs. Þórhalli er kvæntur Guðnýju Tómasdóttur. Komast má á facebook síðu afmæliskylfingsins hér að neðan til þess að óska honum til hamingju með merkisafmælið!

Þórhalli þegar hann tók við af Jóhanni Friðbjörnssyni, sem formaður GKB árið 2017

Þórhalli Einarsson – Innilega til hamingju með 60 ára merkisafmælið!

Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Larry Ziegler, 12. ágúst 1939 (82 ára); Birgit Henriksen, 12. ágúst 1942 (79 ára); Ingunn Steinþórsdóttir (63 ára); Gunnar Sandholt, 12. ágúst 1949 (72 ára);  Þórhalli Einarsson, 12. ágúst 1961 (60 ára); Oddný Sturludóttir, 12 ágúst 1976 (45 ára); Chase Seiffert, 12. ágúst 1991 (30 ára STÓRAFMÆLI); Jóhannes Georg Birkisson, 12. ágúst 1999 (22 ára) … og …

Golf 1 óskar afmæliskylfingnum og öðrum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið!

Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is