Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 25. 2024 | 23:52

AIG Women’s Open 2024: Lydia Ko vann 3. risamótstitil sinn!!!

Það varhin 27 ára Lydia Ko frá Nýja Sjálandi, sem stóð uppi sem sigurvegari á AIG Women´s Open risamótinu.

Hún bætir nú 3. risatitlinum við í safnið, eftir að vera nýbúin að taka gull á Ólympíuleikunum í París!!!

Ótrúlegur kylfingur!!!

Sigurskor Ko á Old Course, þar sem mótið fór fram var 7 undir pari, 281 högg (71 70 71 69).

Fjórar deildu með sér 2. sætinu, 2 höggum á eftir Ko þ.e. þær Nelly Korda og Lilia Vu frá Bandaríkjunum, Ruoning Yin frá Kína (bronsverðlaunahafinn í nýafstöðnum Ólympíuleikum) og Jiyai Shin frá S-Kóreu.

Sjá má öll úrslit frá AIG Women´s Open með því að SMELLA HÉR: