Lydia Ko
Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 15. 2012 | 07:00

ALPG: Queen Sirikit Cup á næsta leyti – Lydia Ko valin í lið Nýja-Sjálands

Dagana 23.-27. apríl fer fram í Tanah Merah Country Club í Singapore, Queen Sirikit Cup. Þetta er í 34. skiptið sem mótið er haldið. Þátt taka lið 14 þjóða frá Ástral-Asíu og þ.a.l. bæði lið Ástralíu og Nýja-Sjálands.

Hin 14 ára Lydia Ko hefir verið valin í lið Nýja-Sjálands ásamt þeim Chantelle Cassidy og Emily Perry og binda Ný-Sjálendingar miklar vonir við lið sitt í ár, en lið Nýja-Sjálands hefir ekki unnið mótið frá árinu 1999, þegar þær  Lisa Aldridge, Renee Fowler og Tina Howard  unnu titilinn eftir umspil við lið Taipei á Paraparaumu Beach.

Þetta er í 2. sinn sem Emily Perry tekur þátt í mótinu og í 3. sinn sem hin unga Lydía Ko tekur þátt, en í fyrra urðu þær ásamt Ceciliu Cho í 5. sæti í mótinu í Delhi Golf and Country Club á Indlandi, 11 höggum á eftir sigurvegaranum Kóreu.

Kórea hefir oftast unnið mótið frá því það hófst 1979, eða alls 14 sinnum, Ástralir næstoftast eða 8 sinnum og Japanir 5 sinnum.

Sjá má heimasíðu Queen Sirikit Cup með því að smella HÉR: