Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 11. 2021 | 18:00

Áskorendamót Evrópu: Haraldur Franklín náði sínum næstbesta árangri

Haraldur Franklín Magnús, atvinnukylfingur úr GR, náði sínum næst besta árangri á Áskorendamótaröðinni, Challenge Tour, á Dimension Data Pro-Am mótinu sem fram fór á Fancourt Golf Estate í Suður-Afríku, 6.-9. maí sl.

Haraldur Franklín endaði í 28. sæti á 7 höggum undir pari samtals (70-69-72-70).
Fyrir árangurinn fékk 3.466 Evrur eða sem nemur 540 þúsund kr.

Besti árangur GR-ingsins er 14. sætið sem hann náði undir lok keppnistímabilsins 2020.

Þetta var þriðja mótið sem Haraldur Franklín keppir á í þessari törn á Áskorendamótaröðinni, Challenge Tour. Mótaröðin er sú næst sterkast hjá atvinnukylfingum í Evrópu. Haraldur Franklín komst ekki í gegnum niðurskurðinn á fyrstu tveimur mótunum.

Heimamaðurinn Wilco Nienaber sigraði á -19 undir pari eftir að hafa sigrað Svíann Henric Sturhed í bráðabana um sigurinn – en hann lék einnig á -19 samtals. Fyrir sigurinn fékk Nienaber um 8,5 milljónir kr. í verðlaunafé.

Sjá má lokastöðuna í mótinu með því að SMELLA HÉR: 

Texti og mynd: GSÍ