Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 9. 2012 | 20:05

Bandaríska háskólagolfið: Ólafur Björn í 71. sæti á Seminole Intercollegiate eftir 1. dag

Í dag hófst á Southwood golfvellinum, í Tallahassee, Flórída, Seminole Intercollegiate í bandaríska háskólagolfinu. Þátttakendur eru 96 frá 18 háskólum og þeirra á meðal er Ólafur Björn Loftsson, NK og Charlotte.

Ólafur Björn spilaði 1. hring á +5 yfir pari í dag, 76 höggum. Hann fékk 2 skramba, 2 fugla og 3 skolla á hringnum. Ólafur Björn deilir sem stendur 71. sætinu með 9 öðrum kylfingum. Charlotte deilir 4. sætinu með Kennesaw State, en liðsfélögum Ólafs Björns gekk vel í dag – bestir í liðinu voru Raoul Menard og Paul Ferrier, deila 6. sætinu ásamt öðrum í einstaklingskeppninni á -2 undir pari, 69 höggum.

Golf 1 óskar Ólafi Birni góðs gengis á morgun!

Til þess að sjá stöðuna eftir 1. dag smellið HÉR: