Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 28. 2012 | 23:00

Bandaríska háskólagolfið: Ólafur Björn lauk leik á 73 höggum

Ólafur Björn Loftsson, NK og Charlotte lauk nú rétt í þessu 3. og síðasta hring á North Ranch Intercollegiate. Alls spilaði Ólafur Björn á +9 yfir pari, þ.e. samtals 219 höggum (70 76 73). Sem stendur er Ólafur Björn í 13. sæti, sem hann deilir með öðrum kylfingum.  Nokkrir eiga eftir að ljúka leik og því gæti sætisröð breyst eftir því sem líður á kvöldið. Það sama er að segja um háskólana, en röð þeirra gæti líka breyst. Sem stendur deilir Charlotte 5. sætinu með öðrum skólum.

Alls voru þáttakendur í mótinu 72 frá 14 háskólum.

Til þess að sjá niðurstöðuna á North Ranch Intercollegiate smellið HÉR: