Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 28. 2012 | 18:00

Bandaríska háskólagolfið: Arnór Ingi á 77 höggum á Armstrong Men´s Pirate Invitational

Armstrong Atlantic State University í Georgíu í Bandaríkjunum stendur 11. árið í röð fyrir Armstrong Men´s Pirate Invitational háskólamótinu.  Spilað er í Savannah Quarters Country Club í Pooler, Georgíu.

Lið 14 háskóla taka þátt í mótinu en auk Armstrong sjóræningjanna taka þátt Flagler College, sem sigrað hefir mótið 2 undanfarin ár,  UNC Pembroke, Georgia College, Wingate og Belmont Abbey, háskóli Arnórs Inga Finnbjörnssonar, Íslandsmeistarans okkar í holukeppni 2011, GR.

Hin háskólaliðin eru úr Clayton State, Lander, North Georgia, Coker CollegeMount Olive,Lenoir-Rhyne University, Eckerd College og South Georgia College.

Mótið átti að vera 2 daga 54 holu mót og skv. venju átti að spila 36 holur fyrri daginn og 18 seinni.  En miklar rigningar í gær urðu til þess að aðeins tókst að ljúka 9 holum og var mótinu breytt í 36 holu mót og áætlað að spila 27 í dag. Þegar hefir verið lokið við að spila seinni 9 á fyrri hring.

Eftir fyrri 18 holurnar (9 spilaðar í gær og 9 í dag) er Arnór Ingi búinn að spila á 77 höggum og er í 41. sæti. Belmont Abbey deilir 5. sætinu með sigurvegurunum frá því í fyrra Flagler og Eckerd College.

Í efsta sæti er Adam Hedges, liðsfélagi Arnórs Inga, í Belmont Abbey, en hann spilaði á 69 höggum og deilir 1. sætinu með Scott Lambert frá UNC.