Arnór Ingi Finnbjörnsson, GR og The Crusaders í Belmont Abbey. Mynd: Golf 1.
Ragnheiður Jónsdóttir | október. 9. 2012 | 16:45

Bandaríska háskólagolfið: Arnór Ingi og The Crusaders í 2. sæti á Kings College Invitational

Arnór Ingi Finnbjörnsson, GR, Íslandsmeistari í holukeppni 2011 og golflið Belmont Abbey, the Crusaders taka þátt í 2 daga móti í Bristol, Tennessee, the Kings College Invitational.

Þátttakendur í mótinu eru 42 frá 8 háskólum.

Arnór Ingi og the Crusaders eru í 2. sæti í liðakeppninni.  Arnór Ingi spilaði á 6 yfir pari, 76 höggum og er T-20 í einstaklingskeppninni. Hann var á 4. besta skori The Crusaders og því telur skor hans.

Golf 1 óskar Arnóri Inga góðs gengis!

Til þess að sjá stöðuna eftir fyrri dag mótsins SMELLIÐ HÉR: