Ragnheiður Jónsdóttir | október. 24. 2018 | 05:45

Bandaríska háskólagolfið: Birgir Björn, Gunnar og félagar urðu í 7. sæti í Texas

Birgir Björn Magnússon, GK og Gunnar Blöndahl Guðmundsson, GKG tóku ásamt liði sínu Bethany Swedes þátt í Tyler JC Fall Invitational mótinu.

Mótið fór fram dagana 22.-23. október 2018 og lauk því í gær.

Þátttakendur voru 52 frá 7 háskólum.

Birgir Björn varð T-23 með skor upp á 3 yfir pari, 147 högg (72 75).

Gunnar lék á samtals 18 yfir pari, 162 höggum (84 78).

Lið þeirra Birgis Björns og Gunnars, Bethany Swedes varð í 7. og síðasta sæti í liðakeppninni.

Næsta mót Birgis Björns og Gunnars verður á vorönn næsta árs 2019.

Mynd í aðalfréttaglugga: lið Bethany Swedes, Birgir Björn lengst til vinstri og Gunnar Blöndahl 2. frá hægri.