Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 5. 2019 | 23:00

Bandaríska háskólagolfið: Eva Karen & félagar í 4. sæti e. fyrri dag Murray State Inv.

Eva Karen Björnsdóttir, GR og félagar í ULM eru í 4. sæti eftir 1. dag Murray State Jane Weaver Invitational, sem fram fer í Murray, Kentucky dagana 5.-6. apríl 2019.

Þátttakendur eru 98 frá 15 háskólum.

Eva Karen er búin að spila á samtals 12 yfir pari, 156 höggum (77 79) og er T-46.

Lið ULM er í 4. sæti í liðakeppninni!

Í mótinu er líka Ragnhildur Kristinsdóttir og eru eflaust fagnaðarfundir með þeim GR-ingum í Kentucky!!!

Fylgjast má með Evu Karenu og félögum í Kentucky með því að SMELLA HÉR: