Ragnheiður Jónsdóttir | október. 14. 2012 | 21:30

Bandaríska háskólagolfið: Eygló Myrra og University of San Francisco í 4. sæti á Wyoming Cowgirl Desert Intercollegiate

Eygló Myrra Óskarsdóttir, GO og golflið USF taka nú um helgina þátt í Wyoming Cowgirl Desert Intercollegiate, sem fer fram í The Classic Club/Troon Golf Palm Desert, í Kaliforníu.

Þetta er tveggja daga mót; fyrri dagur var í gær og þá spilaðir tveir hringir og í kvöld verður lokahringurinn spilaður.

Þátttakendur eru 104 frá 17 háskólum

Eygló Myrra spilaði á samtals 154 höggum (78 76) fyrri daginn og er sem stendur í 30. sæti.  Hún er á 3. besta skorinu í liði sínu, sem er í 4. sæti.

Þetta er síðasta mót sem Eygló Myrra spilar á í haust með golfliði University of San Francisco.

Til þess að sjá stöðuna eftir fyrri dag Wyoming Cowgirl Desert Intercollegiate SMELLIÐ HÉR: