Guðrún Brá Björgvinsdóttir, GK. Mynd: Í einkaeigu
Ragnheiður Jónsdóttir | október. 8. 2016 | 10:00

Bandaríska háskólagolfið: Guðrún Brá og Fresno State í 11. sæti e. 1. dag í Colorado

Guðrún Brá Björgvinsdóttir, GK hóf í gær leik á Ron Moore Women´s Intercollegiate, sem er mót helgarinnar hjá Fresno State í bandaríska háskólagolfinu.

Mótið fer fram í Highlands Ranch golfklúbbnum í Littleton, Colorado.

Þátttakendur eru 102 frá 18 háskólum og mótið stendur dagana 7.-9. október 2016.

Guðrún Brá lék 1. hring á 3 yfir pari, 75 höggum og er sem stendur T-38, þ.e. deilir 38. sætinu með 13 öðrum kylfingum, sem voru á sama skori og hún.

Efst eftir 1. dag er 3 Katarina Prendergast frá Colorado háskóla, er sem sagt á heimavelli; lék á 4 undir pari, 68 höggum.

Til þess að fylgjast með gengi Guðrúnar Brár og til að sjá stöðuna á Ron Moore Women´s Intercollegiate SMELLIÐ HÉR: