Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 3. 2019 | 17:00

Bandaríska háskólagolfið: Helga Kristín & félagar luku keppni í 4. sæti í Georgia!!!

Helga Kristín Einarsdóttir, GK og félagar í University of Albany tóku þátt í John Kirk Panther Intercollegiate, sem fram fór dagana 31. mars – 2. apríl og lauk í gær.

Mótsstaður var Eagle´s Landing CC í Stockbridge, Georgía.

Þátttakendur voru 90 frá 16 háskólum.

Helga Kristín lék á samtals 19 yfir pari, 235 höggum (75 78 82).

Hún lauk keppni T-32 í einstaklingskeppninni og var á 4. besta skorinu í liði sínu

Lið Helgu Kristínar, Albany, varð í 4. sæti í liðakeppninni!!!

Sjá má lokastöðuna á John Kirk Panther Intercollegiate með því að SMELLA HÉR:

Aðalmyndagluggi: Helga Kristín og liðsfélagar í Albany. Helga Kristín er í fremri röð lengst til vinstri.