Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 18. 2019 | 07:10

Bandaríska háskólagolfið: Hlynur á besta skori UNT á 1. degi The All-American í Houston

Hlynur Bergsson, GKG eða Lenny eins og hann er kallaður í Bandaríkjunum og golflið hans í bandaríska háskólagolfinu, University of North Texas (UNT) taka þátt í The All-American Invitational, sem fram fer í the Golf Club of Houston, í Houston, Texas dagana 17.-19. febrúar 2019.

Þátttakendur eru 84 frá 14 háskólum.

Eftir 1. dag mótsins er Hlynur á besta skori liðs síns er T-16, eftir að hafa spilað 1. hring á sléttu pari, 72 höggum.

UNT er T-10 í liðakeppninni.

Sjá má stöðuna á The All-American Invitational með því að SMELLA HÉR: 

Í aðalmyndaglugga: Hlynur Bergsson. Mynd: Rick Yeatts