Afmæliskylfingurinn í kaddýstörfum. Mynd: Golf 1
Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 15. 2014 | 14:00

Bandaríska háskólagolfið: Íris Katla í 11. sæti fyrir lokahringinn

Íris Katla Guðmundsdóttir, GR og golflið Queens, The Royals taka þátt í 2014 Food Lion SAC Women’s Golf Championship, svæðismótinu.

Mótið hófst í gær og stendur dagana 13.-15. apríl 2014 og lýkur því í kvöld.

Gestgjafar eru Carson-Newman University, South Atlantic Conference, & Tusculum Women’s Golf  og mótið fer fram í Sevierville, Tennessee.

Þátttakendur í mótinu eru 60 frá 11 háskólum.

Íris Katla bætti sig um 2 högg milli hringja var á 12 yfir pari, 84 á 1. hring en lék í gær á 10 yfir pari 82 höggum og fór fyrir vikið upp um 4 sæti á skortöflunni í einstaklingskeppninni, þ.e. úr 15. sætinu í það ellefta.  Queens er sem stendur í 3. sætinu í liðakeppninni og Íris Katla á 3. besta skorinu, sem telur því í glæsilegum árangri liðsins.

Til þess að fylgjast með gengi Írisar Kötlu á lokahringnum  SMELLIÐ HÉR: