Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 15. 2012 | 04:45

Bandaríska háskólagolfið: Ólafur Björn er í 31. sæti á Hawkeye-Great River Entertainment Inv. eftir fyrri dag

Ólafur Björn Loftsson, NK og félagar í Charlotte spiluðu fyrstu 2 hringi á Hawkeye-Great River Entertainment Invitational, í bandaríska háskólagolfinu. Mótið, sem er 2 daga (14.-15. apríl)  fer fram á Finkbine golfvellinum í Iowa City, Iowa. Þátttakendur eru 60 kylfingar frá 11 háskólum.

Ólafur Björn spilaði fyrstu tvo hringina á samtals +3 yfir pari, samtals 147 höggum (75 72) og deilir sem stendur 31. sætinu með 5 öðrum. Ólafur Björn var á 3. besta skori liðs síns.

Efstur eftir 1. dag er heimamaðurinn Nate McCoy, úr Iowa State, á samtals -7 undir pari, samtals 133 höggum (68 65).

Lið Charlotte er í 6. sæti í liðakeppninni.

Golf 1 óskar Ólafi Birni góðs gengis í dag á lokahringnum!

Til þess að sjá stöðuna eftir fyrri dag Hawkeye-Great River Entertainment Invitational smellið HÉR: