Ragnheiður Jónsdóttir | október. 16. 2012 | 16:15

Bandaríska háskólagolfið: Ragna Björk í 6. sæti eftir fyrri dag St. Leo Invitational

Ragna Björk Ólafsdóttir, klúbbmeistari GKG 2012 og í golfliði St. Leo Lions hóf í gær leik  á St. Leo Invitational, í Flórída.

Mótið er 2 daga fer fram dagana 15.-16. október  í  Lake Jovita Golf and Country Club. Sjá má heimasíðu klúbbsins með því að SMELLA HÉR: 

Þátttakendur eru 76 frá 14 háskólum en auk St. Leo Lions, golfliðs Rögnu Bjarkar, taka þátt 13 önnur háskólalið frá: Tampa, Eckerd, Florida Tech, Barry, Florida Southern, Florida Southern B, Flagler, Lynn, Columbus State, Mount Olive, Nova Southeastern, Webber International, and Johnson & Wales.

Ragna Björk spilaði á 74 höggum fyrri daginn og er í 6. sæti í einstaklingskeppninni. Hún er 1.-2. besta skori St. Leo Lions eftir fyrri dag mótsins.

Eftir fyrri dag eru St. Leo Lions golflið Rögnu Bjarkar í 3. sæti í liðakeppninni. Glæsilegur árangur þetta!!!

Golf 1 óskar Rögnu Björk góðs gengis!!!

Til þess að sjá stöðuna eftir 1. dag á St. Leo Invitational SMELLIÐ HÉR: