Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 17. 2021 | 18:00

Bandaríska háskólagolfið: Ragnhildur Kristins sigraði á Bobby Nichols Intercollegiate!!!

Ragnhildur Kristinsdóttir, GR og lið hennar í bandaríska háskólagolfinu, Eastern Kentucky tóku þátt í Bobby Nichols Intercollegiate.

Mótið fór fram dagana 14.-16. mars 2021 í Sevierville golfklúbbnum í Sevierville, Tennessee.

Þátttakendur voru 65 frá 13 háskólum.

Ragnhildur gerði sér lítið fyrir og sigraði í einstaklingskeppninni – lið hennar Eastern Kentucky sigruðu jafnframt í liðakeppninni.

Ragnhildur Kristins

Stórglæsilegt hjá Ragnhildi!!!

Þess mætti geta að þetta er 2. sigurinn hjá Ragnhildi í einstaklingskeppni í bandaríska háskólagolfinu.

Sjá má lokastöðuna í mótinu með því að SMELLA HÉR: