Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 31. 2019 | 13:00

Bandaríska háskólagolfið: Ragnhildur lauk keppni T-2 á Colonel Classic!!! EKU sigraði liðakeppnina!!!

Ragnhildur Kristinsdóttir, GR og félagar í Eastern Kentucky University (EKU) tóku þátt í Colonel Classic háskólamótinu, sem fram fór í Arlington í Richmond, Kentucky, dagana 29.-30. mars 2019 og lauk í gær

Þátttakendur voru 81 frá 13 háskólum.

Ragnhildur náð þeim glæsilega árangri að landa 2. sætinu í einstaklingskeppninni, sem hún deildi ásamt 3 öðrum kylfingum, sem allar spiluðu keppnishringina 3 á parinu.

Nánar tiltekið spilaði Ragnhildur á samtals 216 höggum (73 70 73).

EKU, lið Ragnhildar sigraði í liðakeppninni, sem er stórglæsilegt!!!

Sjá má lokastöðuna á Colonel Classic með því að SMELLA HÉR:

Næsta mót Ragnhildar og félaga í EKU er 5.-6. apríl í Kentucky.