Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 5. 2019 | 19:00

Bandaríska háskólagolfið: Ragnhildur lauk keppni T-29 á UNF Collegiate

Ragnhildur Kristinsdóttir, GR og félagar í Eastern Kentucky University (EKU) hafa lokið keppni á UNF Collegiate.

Mótið fór fram í Jacksonville Golf og Country Club, í Flórída, dagana 4.-5. mars 2019 og lauk í dag. Þátttakendur voru 90 frá 17 háskólum.

Ragnhildur lék á samtals 8 yfir pari, 224 höggum (75 70 79) og varð T-29 í einstaklingskeppninni. Hún var á 3. besta skori EKU.

Lið Ragnhildar, EKU, lauk keppni T-8 i í liðakeppninni.

Til þess að sjá lokastöðuna á UNF Collegiate SMELLIÐ HÉR:

Næsta mót Ragnhildar og EKU er 17. mars n.k. í Tennessee.