Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 9. 2019 | 18:00

Bandaríska háskólagolfið: Sigurlaug Rún & félagar urðu í 9. sæti í Missouri

Sigurlaug Rún Jónsdóttir, GK og félagar í Drake tóku þátt í Kansas City Intercollegiate mótinu.

Mótið fór fram dagana 8.-9. apríl og lauk í dag.

Mótsstaður var Raymore, Missouri.

Sigurlaug Rún hefir þegar þetta er ritað lokið keppni en hún lék á 28 yfir pari, 244 höggum (83 80 81) og lauk keppni T-48 í einstaklingskeppninni.

Lið Drake varð í 9. sæti í liðakeppninni.

Sjá má lokastöðuna á Kansas City Intercollegiate mótinu með því að SMELLA HÉR: