Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 1. 2014 | 22:30

Bandaríska háskólagolfið: Sunna og Elon luku leik í 7. sæti

Íslandsmeistarinn okkar í höggleik 2013, Sunna Víðisdóttir, GR, lauk í kvöld keppni,  ásamt liði sínu Elon, á John Kirk Panther Intercollegiate mótinu.

Mótið fór fram í Eagle´s Landing Country Club í Stockbridge, Georgíu-ríki og voru þátttakendur  90 frá 17 háskólum.

Mótið stóð dagana 30. mars – 1. apríl 2014.

Sunna lék á samtals 13 yfir pari, 229 höggum (77 75 77) og lauk keppni í 22. sæti í einstaklingskeppninni..  Hún var á 2. besta skori Elon, sem lauk keppni í 7. sæti í liðakeppninni og taldi skor Sunnu því.

Næsta mót Sunnu og Elon er í Norður-Karólínu og hefst n.k. föstudag 4. apríl 2014.

Til að sjá lokastöðuna á John Kirk Panther Intercollegiate  SMELLIÐ HÉR: