Valdís Þóra Jónsdóttir, GL, Íslandsmeistari í höggleik kvenna 2012 – en mótið fór fram á Strandarvelli – Hellu. Mynd: Golf 1
Ragnheiður Jónsdóttir | október. 29. 2012 | 20:50

Bandaríska háskólagolfið: Valdís Þóra og Texas State í 11. sæti eftir 2. dag Alamo Inv.

Valdís Þóra Jónsdóttir, GL  og golflið Texas State léku í dag 2. hring á the Alamo Invitational á Briggs Ranch golfvellinum í San Antonio, Texas.

Þetta er þriggja daga mót, stendur frá 28.-30. október og þátttakendur eru 78 frá 15 háskólum.

Valdís Þóra er búin að spila á samtals 9 yfir pari, 153 höggum (73 80) og átt fremur dapran hring í dag, en á skorkorti hennar voru 3 fuglar, 9 pör, 3 skollar og 3 skrambar!  Við þetta lækkaði Valdís Þóra úr 25. sætinu sem hún var í, í gær, í 49. sætið.

Texas State lið Valdísar Þóru er sem stendur enn í 11. sæti í liðakeppninni.

Golf 1 óskar Valdísi Þóru góðs gengis á morgun, lokadegi keppninnar!

Til þess að sjá stöðuna eftir 2. hring Alamo Invitational SMELLIÐ HÉR: